Það er komið sumar
Þessar síður eru góðar
15.11.2006 22:07:32 / Annadis

Þetta #%$&##% blogg!!!

Það er alltaf verið að segja mér að blogg en mér þykir ekki gaman að vera í tölvunni og hvað þá að eyða tíma mínum í það að vera að blogga eða lesa annara manna blogg.

Hvað um það við Narfi skemmtum okkur konunglega í USA og það var frábært að vera hjá Bjössa og Arwen og auðvitað stelpunum, Það er rosalega gaman að vera með börnum og hugsa um þau, ég hef prufað þetta nokkuð vel fyrst hef ég verið barnapía og svo var ég að vera með Salbjörgu fyrir norðan sem ég sakna mjög mikið en þetta var öðruvísi ég svaf í herberginu hennar Jöru og fyrir þá sem vita það ekki þá er hún eins árs frænka Narfa, ég vaknaði með henni á nótunni og gaf henni pelann sinn og vaknaði með henni á morgnanna og allt svona þetta er svaka stuð :) Jú auðvitað fórum við Narfi í búðir í USA og það var sko gaman eitt smá verðdæmi: við keyptum okkur myndavél og 1 gb kort í hana fyrir 20þúsund íslkr en hér á heima hefði þetta kostað 55þús íslkr sem er 35þús verðmunur og það er sko hellingur. Vegna verðmunsins var geggjað gaman að versla.
Við fórum líka í skemmtigarð og það fórum við í rússíbana sem fer uppí 113km hraða sem er geggjað :)

Jæja ef þið viljið endilega heyra fréttir af mér verðir þið bara að hryngja í mig eða ég í ykkur, þeir sem vilja tala við mig vita símanúmerið og þeir sem hafa ekki símanúmerið þurfa greinilega ekki að tala við mig :) bæbæb


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 19:35:43 / Annadis

Amertíka hér ví komm

Já þetta er alveg að skella á við Narfi förum til Ameríku á morgun. Við komum aftur heim snemma morguns 1.nóv. Það er allt gott að frétta. 

Ég er að fara að VEEERRRSSSLLLAAAA :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 12:50:09 / Annadis

Amerískar pönnukökur í morgunmat!

Góðan daginn, við Narfi erum bara heima um helgina. Í gær var planið að fara í sveitina eftir vinnu og fara á réttarball en svo var ég eitthvað að drolla æi og við ákváðum bara að vera heima. Í morgun vöknuðum við fyrir 10 á ákváðum að prufa að hafa Amerískar pönnukökur í morgunmat. Narfi bakaði á meðan ég tók til í eldhúsinu og stofunni, það var ekki búið að gera það í langan tíma :)
Í dag er svo planið að bóna bílinn fara inní Ólafsvík og svo bara að slappa af. Á morgun er ég að spá í að hafa lambahrygg í  kvöldmat því ég er ekki viss um að ég geti vaknað nógu snemma til að hafa það í hádeigismat.
Það er sem sagt allt gott að frétta nema að mig langar að fara norður eða suður eða bara eitthvað, við Narfi erum bara ein hérna og enginn af  vinum okkar sem er svolítið leiðinlegt :( 
En við erum nú dugleg að vera að fara út um allt :)

Bið að heilsa. kv Anna Dís

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 20:45:23 / Annadis

sumar fríið er búið

jæja þá er sumarfríið búið, ég gerði margt og mikið í sumar.
Ég djammaði oggulítið en þurfti mjög oft að vinna um helgar þannig að það var lítið af djamminu en ég fór norður og hitti þar skemmtilegasta fólk sem ég þekki. Þið vitið sjálf um hverja ég er að tala, ég sakna ykkar mikið. Ég gekk uppá Kirkjufellið með Christjani frænda mínum og það var æðislegt.

Í vetur verðum við Narfi í Grundarfiði hann að vinna á Gráborg sem er smíðaverkstæði og ég að vinna í Snæþvotti sem er geggjað þvottahús sem er mjög skemmtilegt þó ótrúlegt meigi virðast. Í sumar hef ég matreitt allan fjandan og komist að því að það er frábært að vera farin að búa og gott að búa með Narfa :) við erum mjög hamingjusöm hérna. Í síðustu viku pönntuðum við okkur ferð til USA og við förum þangað 18.okt. við erum að fara að heimsækja Bjössa og co, Bjössi er elsti bróðir narfa fyrir þá sem það ekki vita.

Annars er frekar lítið að frétta  hérna á nesinu nema að það er búið að rigna síðustu viku en vikuna fyrir það týndi ég helling af krækiberjum og bjó til sultu og saft sem er mjög gott þó ég segi sjálf frá.

kv. Anna Dís Þvottakona

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 17:22:37 / Annadis

það eru allir að tala um eitthvað bloggtime

ég er í sumarfríi og hef það gott, annars er ég bara búin að vera að vinna. En ég fer ekki í tölvuna á sumrin, þannig að það hefur enginn rétt á því að vera sár ef ég les ekki bloggið hans/hennar. Ég eyði ekki sumrinu mínu í svona vitleysu. 

» 6 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 17:11:21 / Annadis

Stúdent

Það er satt ég varð stúdent ásamt 15 öðrum á fimmtudaginn 25.maí á laugum. Útskriftarathöfnin fór vel fram og var bara nokkuð skemmtileg. Ég var fyrst til að útskrifast en það er nú mömmu að þakka vegna þess að Anna Dís er nú fyrst í stafróinu :) Ég útskirfaðist með 7,19 í meðaleinkun á mínum framhaldsskólaferli og ég er bara nokkuð sátt með það. Það fengu allir einhverjar viðurkenningar og vellaun og fékk ég tvær bækur og púlsmæli. Þessar gjafir voru fyrir góðan árangur í íþróttafræðum og íþróttagreinum svo var púlsmælirinn fyrir að koma skólanum til hjálpar í neyð. Um kvöldið var svo flottur kvöldmatur og Hallur var veislustjóri, þetta var alveg þokkalegt. Daginn eftir fórum við Narfi til Ragga og Anitu og keyptum Subaroinn af þeim :) frábær kaup, bílinn er mikið keyrður en subaro er bara betri þegar hann er vel reyndur :)
Sunnudaginn 28. Maí héldum við Narfi útskirftarveilsu heim í Deildatungu og mætti eitthvað um 60 manns, sem var bara nokkuð gott. Við fengum mjög fallegt veður og mæður okkar voru frábærar að baka og hafa veisluna fallega. Við Narfi fengum helling af pökkum, sumir sögðu að þetta líktist meira brúðkaupi en útskriftarveilsu en ég er nú ekki viss. Ég vil bara þakka öllum fyrir gjafirnar og munu þær vera mikið notaðar. Meðal annars fengum við kitchen aid hrærivél frá foreldrum mínum og bræðrum og það þýðir bara það að ég get bakað alveg helling :) Ég nenni nú ekki að fara að telja upp allt sem við fengum enda alveg hellingur.

Ég byrja að vinna á morgun en Narfi er löngu byrjaður að vinna og er í Reykjavík að smíða sólpall fyrir einhvern plebba :)

Jæja ég nenni ekki að segja frá meiru enda ekki neitt spennandi að gerast.
bæbæ.

» 9 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 16:27:13 / Annadis

Hver stjórnar þessu eiginlega

Ég kem hér á síðuna mína og sé að ég er að auglýsa vinstri græna, ég get nú sagt það að ef ég fengi að ráða þá væri ég sko að auglýsa eitthvað allt annað  en vistri græna, þetta er skömm af þessu. Ég ætla nú ekki að tjá mig neitt frekar um það.

Það er margt búið að ske síðustu vikuna. Á miðvikudaginn síðasta eignuðust Anita og Raggi litla prinsessu sem er algert krútt. Það þíðir það að Salbjörg er orðin stóra systir :) Hún er rosalega dugleg og vill allt gera fyrir litlu telpuna systur sína. Ég og Bryndís vorum að leika við Salbjörgu áðan eftir að við sóttum hana á leikskólann, þetta er allt búið að vera mjög skemmtilegt.

Í gær voru tuttugu ár síðan hún mamma mín kom mér í heiminn og ég er henni afar þakklát fyrir það ;) Ég átti sem sagt tuttugu ára afmæli í gær og var það bara ágætt, samt sem áður nokkuð skrítið því ég hef aldrei áður verið án fjölskyldunnar minna á afmælinu mína, Narfi var ekki einu sinni hérna, en þetta var nú allt í lagi ég á góða vini hér á Laugum sem ég var með. Narfi er kominn í Grundarfjörðinn að vinna og ekki vildi ég stoppa það því það er nú gott að ná að vinna eitthvað fyrir útskriftina :) Ég fékk eina afmælisgjöf í gær og var hún frá Bryndísi og Jóhönnu, þær eru algerir snillingar. Ég fékk ramma sem í honum stó " ég fékk þennan ramma í afmælisgjög! Vinir mínir tímdu ekki að gefa mér almennilega gjöf" þetta er svo mikil snilld og takk fyrir það stelpur :) Svo í dag fékk ég annan pakka í pósti frá ömmu og afa og systinnum mömmu og í pakkanum var þessi rosalega fallegi módel gull hringur. Ég átti ekki orð þegar ég opnaði pakkan, hann er rosalega fallegur og er ég afar þakklát. Þakka ykkur öllum fyrir.

Annað er ekki búið að gerast og er ekki að fara að gerast fyrr en á föstudaginn því þá fer ég í seinna prófið mitt sem er félagsfræði, sem þýðir það að ég þarf að fara að læra:evil: En ég bið bara að heilsa og takk fyrir mig.

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2006 16:57:41 / Annadis

Skemmtileg Íþróttabrautarferð

Þetta byrjaði allt saman eftir skóla síðastliðinn miðvikudag, vegna þess að þá lagði íþróttabrautin plús svenni og ingó af stað til Reykjavíkur. Ég var í stelpubílnum eða með Jóhönnu bílstjóra, Bryndísi shotgun, Fanney miðja, Arna Hægri gluggi og ég Anna Dís Visnstri gluggi. Ég held að ég hafi aldrei skemmt mér eins mikið á leiðinni suður eins og í þessari ferð. Það var svakalega gaman hjá okkur. Við stoppuðum á mörgun stöðum en við vorum nú samt komnar í bæinn um ellefu leitið. Þegar í reykjavík var komið gisti allur hópurinn í UMFÍ húsin og við stelpurnar vorum í sér herbergi og strákarnir í sér.
Á fimmtudagsmorgunin var vaknað klukkan 8 og fengið sér morgunmat og svo fengum við fyrirlestur um starf UMFÍ, eftir það fórum við í laugardalshöllina og skoðuðum nýju aðstöðuna og hún var geggjað flott, frábær frjálsíþróttasalur. Svo var borðað á Pizza Hut sem var mjög gott. Þegar allir voru orðnir saddir lögðu allir af stað til keflavíkur að leita að íþróttaakademíunni, við stelpurnar fundum ekki bygginguna fyrst vegna þess að við vorum bara að hafa gaman og okkur lág ekki neitt á að rata :) Þegar komið var í íþróttaakademíuna tók stóri kallinn og gráhærði kallinn á móti okkur og sýndu okkur húsið og sögðu okkur ýmislegt en samt ekki allt. Svo var víst skylda að það myndu tveir í hópnum taka þátt í róðrarkeppni og því miður þurfti ég að keppa fyrir hönd stelpnanna en það var svo sem ágætt, Birkir sveins sló metið sem var og hann gerði það með glæsi brag. Eftir þetta var fið í blá lónið og það var geggjað gaman og kísillinn var samt skrítinn og góður fyrir húðina. Um kvöldið voru allir einhverstaðar og við raggi voru bara tvö útundan þannig að við skelltum okkur í bíó og skemmtum okkur konunglega á myndinni Firewall. Þá var þessi dagur liðinn.
Á Föstudeginum var vaknað á sama tíma og við fórum í KSÍ og fræddumst um starf þeirra og þar fengum við prins polo og coke sem var mjög gott. Eftir KSÍ fórum við í World Class og skoðuðum þessa frábæru aðstöðu og fengum svo að prufa tækin. Þegar World Class var afstaðið fórum við á laugarvatn og þar var okkur kynnt þessi frábæra aðstaða og flotti skóli sem ég er að spá í að fara í eftir ár, en mér leist mjög vel á og mun  áræðanlega fara þangað. Þegar skoðunarferðin var búin fórum við Villi, Bryndís, Raggi og Heiddi í sund á Laugarvatni og skemmtum okkur konunglega. Eftir sundið fórum við á selfoss og fórum á Hróa Hött þar sem ég fékk geggjað góðan hamborgara. Þegar allir voru búnir að borða fylli sína lögðum við af stað til Reykjavíkur og fórum þar í bíó á mjög lélega mynd sem við gátum sagt okkur sjálf en hún heitir scary movie 4 sem er ekki gott.
Í gær laugardaginn 29. apríl fengum við að sofa út eða til 9 og þá var haldið í sporthúsið í kópavogi og fengum skoðunarferð um það og að prufa tækin. Eftir þetta var haldið heim til Villa þar sem allir fengu lasagnea og skúffuköku sem ég hef aldrei smakkað eins góða og eftir það var haldið heim á leið. Ég var bílstjóri í bílnum hans Heidda þar sem hann var veikur í aftursætinu og Raggi og Andrea voru líka með. Þessari ferð lauk rétt eftir átta í gærkveldi þegar ég kom inn á fjall og fór að spila með  Narfa mínum og Hlyn húsbónda.
Ég ætla aldrei að skrifa eins langa færstlu takk fyrir .


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 11:04:50 / Annadis

Páskafríið fer að verða búið

ó mæ gat páskafríið fer að verða búið og ég er ekki búin að læra neitt af því sem ég ætlaði að læra. Við Narfi erum búin að vera mest allt páskafríið að mála, flytja og koma okkur fyrir þannig að það hefur ekki verið neinn tími til að læra en ég verð víst að gera það í dag og réttara sagt ætti ég að vera að gera það núna í stað þess að vera að blogga :) en hvað um það, hún Jóhanna vínkona mín er svo rosalega dugleg að hún er búin með ritgerðina sem ég er rétt byrjuð á, ég er svo stollt af henni að hafa þennan aga á sjálfri sér þegar hún er í fríi, ég bara vildi að ég hefði oggu poggu lítið af honum. En svona er þetta nú bara :) ég er í sveitinni núna og við Narfi vorum í höfuðstaðnum í gær og förum norður á morugun þannig að það er fátt annað að frétta.
Ég bið að heilsa BÆBÆ

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 08:26:01 / Annadis

Búin að vera hörku dugleg :)

Við Narfi erum búin að vera hörku dugleg síðan við komum í pálskafrí, við erum búin að mála mest alla íbúðina á 29 sem við verðum í í sumar. Þetta verður svakalega skemmtilegt að fara að búa og við eigum eftir að hafa það mjög gott í íbúðinni sem hann Gaui lánar okkur :D Takk fyrir það Gaui.
 Núna er ég að bíða eftir því að allir verði komnir úr morgunmjöltum hérna í Deildartungu þannig að ég, Narfi og Gréta getum farið til Reykjavíkur að skoða útskriftarföt :) En akkurat núna eru allir komnir inn svo að það er bara að senda þau í sturtu og borða morgunmat og þá getum við farið af stað :)

Jæja nú er best að fara að hætta þessu svo að ég geti skrifað smá comment til Bryndísar og Jóhönnu :)
Sæl að sinni kv. Anna Dís

» 10 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 11:10:14 / Annadis

Komin í páskafrí

 já það er sko satt ég, Narfi, Bryndís og Villi erum sko komin í páska frí eitthvað annað en hinir krakkarnir sem ætla að vera á laugum þangað til á föstudag. Við Bryndís fengum þá frábæru hugmynd á miðvikudaginn að fara bara á morgun (sem var í gær) í páskafrí vegna þess að það spáði svo illa fyrir lok vikunnar. Við skelltum okkur af stað í gær um hádegi afþví að veðrið var nú ekki neitt gott í gær en það gerði nú ekki neitt til. Við lögðum af stað klukkan tvö eða eitthvað svoleiðis og vorum komin í Deildartungu klukkan tíu í gærkvöldi. Þar sem veðrið var smá að stríða okkur vorum við svolítið lengi á leiðinni en það er allt í lagi :) Við komum við á Laugabakka hjá afa Bryndísar og gáðum á textavarpið hvort heiðin væri greiðfær. Það eina sem var að var smá skafrenningur en við finnum nú ekki fyrir því. En já nú erum við Narfi í Deildartungu og förum heim til mín í kvöld að öllum líkindum :)

Bið að heilsa :)
Kv. Anna Dís

p.s. silvía narfi átti afmæli 3.apríl ekki 4.apríl 

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 14:01:38 / Annadis

Fátt að frétta

Ég sit hérna uppi á bókasafni og er að reyna að byrja á ritgerðinni sem ég er að fara að skrifa um Dislexiu eða lesblindu í íslensku. Það er nú ekki auðvelt að lesa þetta allt saman en það er svo mikið efni til um þetta að maður verður enga stund að henda niður 12 blaðsíðum af þessu ef maður kemur sér einhverntíman á stað :)
ætli maður verði ekki langt komin næstu helgi ef ég held vel á spöðunum :) En það er svo sem ekki neitt að frétta hérna, frekar stutt helgi vegna þess að það var kennt hér á laugardaginn svo að við fáum lengra páskafrí sem er gott sko.
Ég hef ekki neitt að segja svo ég er hætt þessu.

Kv. Lati sportisinn


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 14:41:53 / Annadis

Frábær vika!

 Það hefur aldrei liðið vika eins og þessi. Ég er búin að hafa eitthvað að gera á hverjum einasta degi :) Mánudagurinn var rólegur nema að ég þurfti að skila ritgerð í félagsfræði þar sem ég kom skoðunum mínum á félagsfræði á framfæri. Annars gerðist ekki neitt merkilegt á mánudeginum.

Á þriðjudeginum fór ég í skólann og svo lyftingaval og svo sund þar sem ég hitti Anitu, Eydísi og litlu dömurnar Salbjörgu og Ingu Sigurrós. Eftir sundið fórum við Bryndís og Jóhanna í þróttó því þar voru Guðni Ágústsson og Dagný Jónsdóttir Framsóknarþingmenn og við spjölluðum um hvað væri vitlaust að stytta framhaldsskólann og hvenær ársins kúamjólkin er best :) og það er sko á sumrin þegar þær eru á grænfóðri. Eftir þennan skemmtilega fund fór ég bara eitthvað að slæpast en eftir sæmund (kvöldkaffi) fórum við Narfi, Ölli, Gunnar Hnefill og Jói Hransi niður í íþróttahús og tókum stóla sem voru þar og keyrðu með þá í Ljósvetningabúð sem er í kinnini. Eftir að við vorum búin að skila af okkur stólunum fórum við á Húsavík og náðum okkur í eitt stykki bar sem Gunnar Hnefill fékk að hirða á hótelinu, þar sem þar er verið að gera allt upp. Þegar ég var komin upp í rúm var klukkan orðin tvö um nóttina og ég orðin slatta þreytt.
    Miðvikudagurinn var snild ég mætti í skólann fram að hádegi og eftir hádegi fórum við  Bryndís með Sigga á Ak þar sem hann lét taka af sér gifsið og Svenni fékk að flkjóta með. Við fórum í nokkrar búðir og fengum okkur auðvitað ís í lindinnn. Bílinn hennar Bryndísar hagaði sér eitthvað illa og vildi frekar treglega bremsa sem er sjaldan heppilegt en við komumst heil heim. Um kvöldið var búið að auglýsa rafmagnsleysi vegna eithverra viðgerða og það þýðir bara eitt og það er vatnsslagur. Um miðnætti vorum við Bryndís búnar að fylla fullt af vatnsblöðrum og Fjalla, Dvergur og Gamli voru á móti Trölla. Þetta var hörku stuð og blotnaði allur skólinn eitthvað en það var komin ró á staðinn um eitt eða hálf tvö :) þetta var gaman.
    Á fimtudaginn gerðist nú ekki neitt mjög merkilegt nema það að við fórum í bíó á myndina " fun with Dick and Jane" og hún var hörku skemmtileg. Ég, Narfi, Bryndís og Ölli sátum í sófa sem var mjög þægilegt. Ölli var á textatakkanum og það er sko frábært starf :)
    Föstudaguinn var algjört æði, það var frábært veður og við höfðum frekar lítið að gera og komumst ekki neitt vegna þess að bílinn hennar Bryndísar var á verkstæði þar sem bremsuborðarnir voru alveg farnir undan bílnum. En okkur leiddist og langaði að gera eitthvað úti af því það var svo gott veður. Narfi fékk allt í einu þá góðu hugmynd að labba í Fosshól og það gerðum við. Ég, Narfi, Bryndí, Siggi og Arna lögðum af stað frá laugum á slaginu þrjú og þegar við vorum komin rétt í byrjunina á fljótsheiði þá mættum við Ölla og hann stökk út úr bílnum sínum og labbaði með okkur.  Við vorum komin í Fosshól klukkan tíu mínútur yfir fimm þannig að við vorum bara tvo tíma og tíu mínútur að labba þetta og þetta eru um 13 kílómetrar og slatti af brekkum. Við fengum okkur að borða og fórum svo bílandi á laugar.
    Gær sagurinn var fínn við vöknuðum um hádegi og fórum í íþróttahúsið afþví þar var héraðsmótið í fótbolta hjá litlu krökkunum. Klukkan þrjú kom Narfi svo niður í hús og við fórum í sund :) Um kvöldið fórum við Bryndís og Narfi á Sölku Völku á húsavík og fengum okkur að borða, við fengum þennan frábæra mat og svo eftirrétti sem voru magnaðir :)
En já ég held að þetta sé komið nóg ég ætla allavega að segja þetta gott núna.
Ég ligg samt enn uppi í rúmi :)
Kv. Anna Dís


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 16:45:46 / Annadis

Sund er frábær íþrótt

Þeir sem þekkja mig halda væntanlega núna að ég sé orðin klikkuð því ég hef allraf sagt að sund sé leiðinleg íþrótt og hef aldrei viljað stunda hana. Núna er tíðin önnur og ég er farin að fara í sund alveg 4-5 sinnum í viku og syndi alltaf 1000m í senn sem er mjög góð hreyfing finnst mér og tekur skamman tíma. Núna rétt í þessu vorum við Narfi að koma úr sundi og synti hann með mér einn kílómeter og var ekki lengi að :)
Annars er fátt búið að gerast nema hvað að söngvakeppnin var haldin síðasliðin mánudag og það með glæsi brag. Keppnin heitir Tónkvíslin og var mikið lagt í að hún verði góð, enda var hún mjög flott. Ölli og Ingó og hinir strákarnir eiga heiður skilinn fyrir þessa keppni því hún var alveg glæsileg, öll ljósin og hljóðið og allt, þetta var flottara en keppnin sjálf verður held ég :) En já það er fátt annað að frétta nema það að ég er pínu að slugs og þarf að drífa mig að skella einni félagsfræðiritgerð á blað fyrir mánudaginn en það er minnsta mál :haha: Alla vega hafið það gott og skemmtið ykkur vel :)

Kv. Anna Dís

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 22:19:58 / Annadis

Ég á frábæra fjölskildu

Hæhæ ég hef nú ekki bloggað í langan tíma en það er sko fullt búið að gerast :) Ég er búin að fara í langa helgi og hún var tæp vika vegna þess að ég var bara í einu prófi og það var fyrsta prófdaginn og Narfi var ekki í neinu prófi. Pabbi Jóhönnu náði í okkur á Laugar, Narfa og Jóhönnu. Við Narfi fórum með flugi suður og þar biðu foreldrar mínir og Narfi kom með í Borgarnes og þangað kom pabbi hans og sótti hann. Ég var að hjálpa mömmu fyrir afmælið hennar, ég gerði nú samt ekki mikið nema vera pínu fyrir en reyndar þreif ég eitthvað heima og hjálpaði henni í bónus :)  Narfi kom svo á fimmtudeginum og  við prufuðum íbúðina hans Gaua sem við verðum í sumar og  svo tókum við daginn snemma á föstudeginum og Narfi sótti um vinnu á nokkrum stöðum og svo var bara málið að hjálpa til heima og þannig.
Laugardagurinn var svo stóri dagurinn eða afmælið hennar mömmu, mamma var mjög fín og sæt og það komu eitthvað um 40 gestir og mikið stuð. Um kvöldið þegar flestir gestirnir voru farnir nema systkinni mömmu þá var farið að spila félagsvist eins og er alltaf gert þegar Þórður bróðir mömmu kemur til landsins. Það var spilað á fjórum borðum og við skemmtum okkur alveg konunglega :) Svanfríður frænka var með flestu slagina í lok kvölds en Narfi náði að vera hæðstur af strákunum. Á sunnudeginum fórum við Narfi inn í Ólafsvík og kisstum alla bless svo fórum við í sveitina eftir kaffi. Á mánudeiginum komu mamma og Gaui í heimsókn í sveitina vegna þess að ég hafði gleymt einhverju heima og mamma þurfti að prufa nýja pílinn sem hún fékk í afmælisgjöf frá Gaua og með einkanúmerinu Kæja Þ sem er geggjað flott.
Svo seinni partinn fór ég í heimsókn til Tryggva og fékk að halda á Val Snæ og hann er svaka krútt :)
Á Þriðjudeginum fórum við Narfi svo með rútu norður og vorum komin á Laugar um kaffi leitið.
Það er annars ekki neitt fleira að frétta núna og ég er orðin þreitt á því að skrifa. Heyrumst Kv. Anna Dís


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7